Hvernig gerir maður eiginlega þessa fræhnúta??

Löggildar húsmæður

07.02.2008 12:41:18 / Erla

Sælar

Gleðilegt ár stúlkur:)

Hvað er að frétta af ykkur? Það er allt frábært að frétta af mér:) Er að fara að flytja um miðjan mars, á von á litlum gullmola í júlí:D og svo er það bara skólinn skólinn og skólinn....Er að fara að skrifa fyrri BA ritgerðina mína núna á þessari önn þannig það er alltaf nóg að gera:)

En jæja langaði bara aðeins að lífga uppá síðuna:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 10:40:48 / húsó2006

OPIÐ HÚS!!!

Jæja stelpur það er opið hús í Húsó næsta laugardag, 8. desember á milli kl. 13:30-17:00. Það væri gaman að reyna að mæta sem flestar og fá okkur smákökur saman. Þetta er reyndar mjög óhagstæð tímasetning fyrir skólafólk sem er í prófum, en þá er bara um að gera að taka sér pásu frá lærdómnum og kíkja. Ég ætla allavega að reyna að kíkja - vonast til að sjá ykkur sem flestar ef ég kemst!!!

Kv. Hildur Edda


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 16:24:10 / Rakel

Jæja stelpur

Hæhæ hvað er að frétta af ykkur stelpur? Hef bara ekki heyrt frá ykkur í mjög langann tíma.. Hvernig gengur hjá Írisi Hafþórs? er hún búin að eignast barn og svona:) það væri gaman að fá að vita um svona fréttir:) er einhver önnur ólétt? er að fjölga eitthvað meira í hópnum? Hvernig verða jólin hjá ykkur? Allavega verð ég bara heima í Vestmannaeyjum með fjölskyldunni minni og Gísli kærastinn minn ætlar að vera hjá mér  um jólinn það verður voða fínt þar sem hann var í Englandi um síðustu jól!:lol: Það væri gaman að fá að heyra frá ykkur;) Það er allt gott að frétta hjá mér enn bara í eyjum í skóla og ég og Gísli erum að spá í að fara að kaupa okkur íbúð og svona.


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 17:21:43 / Rakel

Verslunarmannahelgin :D

Jæja stelpur hvað á að gera um verslunarmannahelgina:D? það væri nú gaman að þá að vita það hvert þið ætlið:D eða ætliði kannski bara að vera heima eins og ég:D verð heima en fer á Þjóðhátið auðvitað:D 5 dagar í mesta djamm ársins;) en nenni ekki meira sjáumst í dalnum er það ekki annars:)? hehe

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 22:40:00 / húsó2006

SUUMAR SUMAR !!!! og allir á HUMARHÁTÍÐ !!!

Sælar géllur !!! ákvað nú bara að blogga hérna smá... ég ætlaði bara að segja ykkur frá því að það stefnir ALLT í brálaða HUMARHÁTÍÐ !!! jááá beibís ,, LOBSTER-FESTIVALIÐ hehe verður       29.júni til 1.júlí OG HVET ÉG AALLLAR TIL AÐ MÆTA !!! það verður brjálað gaman og hægt að djamma af sér rassinn og borða humar ;) !!! hahaha látið mig vita ef þið komið beibís ,,Lítið að frétta af mér annars flutt í sveitina og er að vinna á Hótel Höfn sem er ótrúlega gaman, fullt af skemmtilegum krökkum og svona ;)!! svo er ég líka í sumar skóla !! haha reyna að SAXA smá af fyrir stúdent!!annars bið ég að heilsa ykkur öllum og vonandi hafiði það gott í sumar!!

 p.s Til hamingju með að vera að fara að gifta ykkur Erla og Bjarki ! ;)  <3

Kv Þóra Sigga !!


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 12:15:18 / Rakel

jæja stúlkur:D

Hæhæ hvað er að frétta af ykkur? langt síðan ég hef heyrt frá ykkur. Hvernig gekk í prófunum? Hvar ætliði að vinna í sumar? ég er allavega bara föst inn í frystihúsi í allt sumar:) en hef það voða gott. Ég og 9 aðrar stelpur frá eyjum erum að fara að taka þátt í svokallaðri sumarstúlku Vestmannaeyja. Ekkert ungfrú Íslands dæmi neitt. Ég vona að það verði voða gaman. Fórum í óvissuferð á föstudaginn og á djammið ógeðslega gaman. en hvað eruð þið búnar að vera að gera? Það væri nú gaman ef við færum nú allar saman í útilegu eða sumarbústað eða eitthvað í sumar! hvernig hljómar það?

kv. Rakel Ósk:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 19:05:54 / húsó2006

Hæhæ

Sælar skvísur.. og fleiri sem lesa :lol:

 

Það er opið hús í Húsó laugardaginn 12 mai, og húsið opnar kl 13:30 .. Endilega kíkið ..

 

 eg reyndar kemst ekki :(, en mig langar rosalega :!::!::!:

 

Skemmtið ykkur vel =)

 

Kv. Pála 8)


» 13 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 19:35:03 / húsó2006

What's up?

Já sæl og blessuð.

 Jæja, hvað eruði svo að gera við lífið ykkar núna?

 Endilega kommentið og segið hvað þið eruð að gera.....ég hef ekki hugmynd um hvað meirihlutinn er að gera.

 Ég bý enn í Keflavík og er í skóla þar að klára stúdentinn í vor (þe ef allta fer vel..hehe). Egill er ennþá "kæróinn" og búum við í sitthvoru bæjarfélaginu. Ég er að fara að vinna í Egg í sumar og næsta vetur.

Og hana nú. Næsti gjörið svo vel.......

 Kv.Bryndís


» 17 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 16:30:45 / húsó2006

Hittingur...

Jæja stúlkur!

 Það verður óformlegur Húsóhittingur á morgun, föstudaginn 16. mars, kl. 21.00 á Belly's (góður staður fyrir fátæka róna eins og okkur)! :haha:
Ég vona að sem flestar sjái sér fært um að mæta þó það sé ekki nema í smástund :)

Sjáumst gellur

- Hildur Friðriks


» 18 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 15:53:17 / Rakel

Jæja!!

Jæja stelpur ég er búin að fá bústað 23. mars næstkomandi. Við getum mætt á föstudegi og farið heim á hádegi á mánudag, en ég hafði hugsað mér að fara heim á sunnudegi haha :D. Endilega látiði mig vita ef þið hafið áhuga. Helgin kostar 9000! og ég þarf að vera búin að borga það í byrjun mars svo að mjög gott væri að þið mynduð kíkja í dagbækurnar ykkar og athuga hvort að þið komist:) Ég held að það sé pottur og læti:) og minnir að þetta sé í ölfusborgum eða hvernig sem þetta er nú skrifað haha :D En væruði til í að láta mig vita sem fyrst:) Annað hvort hér á síðunni eða þá í símann minn:P Ég vona að flestar mæti þá verður stuð:)

» 34 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 15:59:12 / Rakel

Sumarbústaður??

jæja stelpur ég var að pæla í hvort að þið væruð til í bústaðarferð einhverja helgina?? hvernig hljómar það? ég get mjög líklega reddað bústað. Svo má þá bara koma með dýnur ef að það eru ekki næg rúm fyrir alla. Ég vil endilega fá að heyra í ykkur hvernig ykkur líst á það, og þá get ég athugað með bústað.

» 10 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 23:55:51 / húsó2006

HeEElúú beeeeiibííís !!!

SÆLAR géllur !!! já er er mmjög sammála síðasta ræðumanni um að fara að halda hitting  ?!!! er ekki einhver til í að vera næstur í röðinni að plana einn slíkann ?  ??  :klikk:,,Rakel var til í Keflavíkurferð ´,:P,, og ég er KLÁRLEGA til í eina slíka ,,, !!!!! Well við verðum að fara að hittast og gera eitthvað ,,, t,d fara í bláalónið og svo djamm í kefl ,, ??  hehe bara uppástunga !!! ,,,endilega einhver að taka þetta að sér :haha:  ...... KOMA SVO STELPUR !!!!  :lol:

Kv Þóra Sigga !!!  ...


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 19:37:34 / Erla

Gleðilegt nýtt ár:)

Sælar stúlkur, hvað segiði? Hvernig voru jólin og áramótin hjá ykkur? Þau voru alveg yndisleg hjá mér:) bara chill og hangs og kósí:)

Svo er náttla skólinn að byrja í næstu viku, er bara þrjá daga í viku í skólanum hehe:) algjör lúxus:) En hvað er að frétta af ykkur? Er einhver hittingur á planinu?

Erla


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 01:03:31 / Erla

GLEÐILEG JÓL:)

Gleðileg jól skvísur!! Vonandi hafiðið það æðislegt yfir hátíðirnar! Borðið mikinn mat og nammi;)

Gleðilegt ár líka hehe:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 17:18:25 / húsó2006

OPIÐ HÚS !!

SÆLAR skvísur !! ég frétti að það ætti að vera opið hús í HÚSÓ 9.des !! veit e-h hvort það er rétt ??? ....... ég er neblilega að spá í að skella mér og rifja upp nýlega/gamla takta :p heheheh !! kv Þóra Sigga


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4